Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) f.h. félags- og húsnæðismálaráðuneytis, kt. 521218-0610, sem hér eftir nefnist kaupandi, óskar eftir leigutilboðum í húsnæði undir hjúkrunarheimili í Mosfellsbæ sem tengjast skal Hjúkrunarheimilinu að Hömrum. Verkefnið felst í hönnun, byggingu og fullnaðarfrágangi hjúkrunarheimilis, sem leigt verður til kaupanda skv. skilmálum húsaleigusamnings. Óskað er eftir leiguhúsnæði sem rúmar allt að 66 hjúkrunarrými. Viðmið heilbrigðisráðuneytisins um skipulag hjúkrunarheimila gera ráð fyrir að lágmarki 65 brúttófermetrum á hvert hjúkrunarrými. Húsnæðisþörf með sameiginlegum rýmum er því um 4.334 fermetrar brúttó. Hið leigða skal standa á lóðinni Langatanga 2a, 270 Mosfellsbæ. Bjóðandi mun leggja til og greiða fyrir fullnaðarhönnun húsnæðisins sem þarf til að húsið fái lögboðnar úttektir. Boðið húsnæði þarf að standast gildandi lágmarkskröfur byggingarreglugerðar nr. 112/2012 og lágmarksviðmið um byggingu og starfsemi hjúkrunarheimila, 3. útgáfu frá 2022. Boðið húsnæði þarf jafnframt að rúmast innan heimilda deiliskipulags. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, kt. 521218-1610 verður leigjandi húsnæðisins samkvæmt húsaleigusamningi með þeim skilmálum sem í samningnum greinir. Tilboð bjóðanda skal miðast við að verkið feli í sér fullnaðarfrágang utanhúss og innanhúss í samræmi við kröfulýsingu og önnur gögn útboðsins. Lóðin afhendist í núverandi ástandi. Allar nánari upplýsingar um er að finna í útboðskerfi FSRE, TendSign.is . Leiðbeiningar varðandi skráningu og skil tilboða er að finna á hér . Til að lesa nánar um útboðið, smellið á þennan hlekk: hér.
Published
14.07.2026
Open for bids
14.07.2026
Deadline
09.11.2026
Færanlegar húseiningar fyrir Hjúkrunarheimilið Hlíð
Open for bids·Oct 16
Hönnun og bygging öryggisfangelsis – Forval
Open for bids·Oct 2
Hjúkrunarheimilið Höfn, Hornafjörður – Endurbætur
Closed·Jul 3
Háskólinn á Akureyri Þakendurnýjun
Closed·Jul 1
Menntaskólinn á Akureyri Þakendurnýjun Hólaálmu
Closed·Jun 30
AUGLÝSING -Brottfararstöð á Suðurnesjum- LEIGUHÚSNÆÐI
Closed·Jun 26
Raforkukaup fyrir Akraneskaupstað 2027-2030
Open for bids·Oct 23
Markaðskönnun: hugbúnaðarlausn fyrir stuðningsþjónustu
Planning·Oct 23
VEU-2609-0060 Fóðrun fráveitulagna
Open for bids·Oct 23
Markaðskönnun – RFI Sjálfvirkur lyfjalager
Planning·Oct 22
Rafræn undirritunarlausn fyrir Reykjavíkurborg. Rammasamningur, EES útboð nr. 16342
Open for bids·Oct 22
Einnota plastsvuntur fyrir Landspítala
Open for bids·Oct 22
Create an account to explore this tender and find similar opportunities.