Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) f.h. ríkissjóðs, óskar eftir upplýsingum um mögulegt húsnæði sem gæti hentað sem brottfararstöð. Kostur er að húsnæðið gæti verið tilbúið til afhendingar eigi síðar en 30.09.2027 eða fyrr. Leitað er að bæði tímabundnu húsnæði og langtímahúsnæði. Tímabundna húsnæðið þarf að vera tilbúið fyrir 1. desember þegar lögin taka gildi. Kostur er ef langtímahúsnæðið verður tilbúið til afhendingar fyrir 30. september á næsta ári. Ekki er útilokað að tímabundna húsnæðið nýtist síðar sem framtíðarhúsnæði. Með tímabundnu húsnæði fæst ákveðin reynsla af því hvers konar húsnæði nýtist best og hversu mikil þörfin verður. Gerð er krafa um að staðsetningin sé á Suðurnesjum og ekki í nálægð við íbúðarbyggð. Húsnæðið þarf að geta hýst allt að 30 einstaklinga, ásamt aðstöðu fyrir starfsfólk og góðu afgirtu útisvæði eða með möguleika á að útbúa slíkt svæði. Húsrýmisþörf er áætluð um 750-1.200 m 2 en allar tillögur verða skoðaðar. Gert er ráð fyrir 15-30 svefnherbergjum með snyrtingum ásamt sturtu eða aðgengi að sameiginlegum snyrtingum með sturtu, þvottahúsi, matsal/félagsrými ásamt viðtalsrýmum, skrifstofum og fleiri rýmum, sjá fylgiskjal rýmislýsing. Við mat á hagkvæmni tillaga verða m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærð húss og skipulagi þess út frá fyrirhugaðri starfsemi, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu og aðkomu. Í auglýsingu þessari er óskað eftir upplýsingum frá markaðnum um framboð á húsnæði. Að könnun lokinni verður tekin ákvörðun hvort samið verði við tiltekinn aðila á grundvelli þessarar auglýsingar eða hafið verði annað leiguferli. Óskað er eftir upplýsingum frá áhugasömum aðilum um eftirfarandi: Nafn fyrirtækisins eða samstarfsfyrirtækja og kennitala/–tölur Upplýsingum um mögulega staðsetningu þess húsnæðis sem fyrirtækið getur boðið, ásamt öðrum upplýsingum/gögnum sem sýna að húsnæðið geti hentað starfseminni. Verðhugmynd fyrir það húsnæði sem fyrirtækið getur boðið. Aðrar upplýsingar og/eða athugasemdir sem viðkomandi vill koma á framfæri vegna fyrirhugaðrar húsnæðisöflunar. Upplýsingar um rýmislýsingu má finna hér: Rýmislýsing 6330402 Auglýsingin verður aðgengileg á www.utbodsvefur.is föstudaginn 26. júní 2026 . Farið verður yfir innsendar upplýsingar um leið og þær berast. Fyrirspurnir varðandi verkefnið Brottfarastöð , skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is . Þess er óskað að svör frá áhugasömum aðilum berist á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is , eigi síðar en kl. 13:00 miðvikudaginn 5. ágúst 2026 . Merkja skal svörin; nr. 6330402 – Brottfarastöð – húsnæði. Auglýsing þessi felur ekki í sér loforð um viðskipti. Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar ef til hennar kemur er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr.
Published
26.06.2026
Open for bids
26.06.2026
Deadline
05.08.2026
Markaðskönnun – leiga skrifstofuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu
Planning·Oct 29
Færanlegar húseiningar fyrir Hjúkrunarheimilið Hlíð
Open for bids·Oct 16
Hönnun og bygging öryggisfangelsis – Forval
Closed·Oct 2
Nýtt hjúkrunarheimili í Mosfellsbæ – leiguleið
Open for bids·Jul 14
Hjúkrunarheimilið Höfn, Hornafjörður – Endurbætur
Closed·Jul 3
Háskólinn á Akureyri Þakendurnýjun
Closed·Jul 1
Rekstur útstöðva og notendaþjónusta
Open for bids·Nov 3
ÚTBOÐ: Keilir – stækkun golfskála
Open for bids·Nov 3
Útboð á þjónustu ráðgjafarteymis verkkaupa (Client Side Support Team – CSST) fyrir Göng og brú ohf.
Open for bids·Nov 2
Floating Pontoon Marina System – Skarfagarður
Open for bids·Nov 2
Hönnun á lengingu Sundabakka
Open for bids·Nov 2
Hreinsun rotþróa fyrir Hvalfjarðarsveit
Open for bids·Oct 30
Create an account to explore this tender and find similar opportunities.