Otnox
🇮🇸Iceland·Buyer: FSRE - Framkvæmdasýslan Ríkiseignir

Færanlegar húseiningar fyrir Hjúkrunarheimilið Hlíð

Open for bids·16 Oct 2026

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE), f.h. Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, sem hér eftir nefnist kaupandi, óskar eftir tilboðum í að fullnaðarhönnun, útvegun, smíði, flutning, uppsetningu og fullnaðarfrágang færanlegs skrifstofuhúsnæðis við Hjúkrunarheimilið Hlíð í Austurbyggð 17 á Akureyri. Verkið felur m.a. í sér hönnun húseininga og kerfa þeirra, útvegun og smíði eininga, flutning þeirra á verkstað, hífingu og uppsetningu, samtengingu eininga, innri og ytri frágang, tengingu tæknikerfa við skilgreinda tengipunkta verkkaupa, prófanir og annan þann frágang sem nauðsynlegur er til að húsnæðið verði fullbúið og tilbúið til notkunar í samræmi við útboðsgögn. Öll hönnun og bygging húsnæðisins skal uppfylla íslenska staðla og reglugerðir, þ.m.t. byggingareglugerð 112/2012, lög nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustu og öryggi á vinnustöðum og reglur Vinnueftirlitsins nr. 581/1995 um húsnæði vinnustaða, ásamt áorðnum breytingum þessara laga og reglugerða. Hönnun húsnæðisins skal byggja á grundvelli algildrar hönnunar þannig að aðgengi allra er tryggt. Um er að ræða almennt útboð eins og því er lýst í 2. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL). Útboð þetta er auglýst innanlands og innan EES svæðisins. Lög um opinber innkaup má nálgast á heimasíðu Alþingis. Vakin er athygli á síðari breytingum á OIL: https://www.althingi.is/lagas/nuna/2016120.html Allar nánari upplýsingar um útboðið er að finna í útboðskerfi, TendSign.is. Hér má finna leiðbeingar um útboðskerfið, innskráningur og skil tilboða. Beinn hlekkur á útboðsgögn: https://tendsign.is/doc.aspx?MeFormsNoticeID=101837

Published

16.10.2026

Open for bids

16.10.2026

Deadline

16.11.2026

Otnox

Find tenders worth bidding for.

Create an account to explore this tender and find similar opportunities.

  • Tender documentsReview available files in one workspace.
  • Requirements and risksRequest a document analysis with references to the sources.
  • Your tender selectionContinue with your selected markets and sectors.