Loading Otnox...
Otnox
🇮🇸Iceland·Buyer: Sveitarfélagið Vogar

Grænaborg – Fráveita – Útrás

Closed·10 Aug 2021

Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilboðum í verkið : ” Grænaborg – Fráveita – Útrás ” Verkið er fólgið í því að leggja og ganga frá að fullu með tilheyrandi jarðvinnu; nýrri sjólögn á haf út sem er um 420 m löng og endar á um 5 m dýpi, ofanvatnslögn og yfirfallslögn sem liggja samsíða sjólögninni og liggja í fjöru og eru um 80 m langar. Lagnirnar liggja frá fyrirhugaðri dælu- og hreinsistöð sem verður staðsett ofan núverandi sjóvarnargarðs, neðan við göturnar Vesturborg og Sjávarborg í Grænuborgarhverfi, og leggjast undir sjóvarnargarðinn á leið sinni um fjöru og á haf út. Hluti sjólagnar verður niðurgrafinn í fjöru og hluti lagður í sjó með steinsteyptum festum, sem einnig á við um ofanvatnslögn og yfirfallslögn að hluta. Rjúfa þarf sjóvarnargarð á meðan lögnum er komið þar fyrir og síðan skal ganga að fullu frá garðinum í samræmi við það sem áður var. Helstu magntölur eru: Uppgröftur 900 m 3 Fyllingar 930 m 3 Fráveitulagnir 540 m Verklok skulu vera eigi síðar en 30. nóvember 2021. Þeir sem hyggjast bjóða í verkið skulu óska eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst til Davíðs Viðarssonar, sviðstjóra umhverfis- og skipulagssviðs Sveitarfélagsins Voga, á netfangið david@vogar.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang, verður þeim þá send útboðsgögnin í tölvupósti. Útboðsgögn verða afhent frá og með miðvikudeginum 11. ágúst 2021. Tilboð skulu hafa borist í tölvupósti á netfangið david@vogar.is, eigi síðar en mánudaginn, 30. ágúst 2021 kl. 10:00. Opnun tilboða fer fram á fjarfundi með „Teams“, fundarkerfi mánudaginn 30. ágúst 2021, kl. 11:00. Þeir bjóðendur sem vilja tengjast opnunarfundinum skulu senda beiðni um það á netfangið david@vogar.is eigi síðar en kl. 10:00 á opnunardag tilboða og verður þeim þá sendur hlekkur til að tengjast fundinum.

Published

10.08.2021

Open for bids

10.08.2021

Deadline

30.08.2021

Otnox

Find tenders worth bidding for.

Create an account to explore this tender and find similar opportunities.

  • Tender documentsReview available files in one workspace.
  • Requirements and risksRequest a document analysis with references to the sources.
  • Your tender selectionContinue with your selected markets and sectors.