Otnox
🇮🇸Iceland·Buyer: Sveitarfélagið Vogar

Göngu- og hjólastígur meðfram Vatnsleysustrandarvegi

Closed·27 Nov 2020

Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilboðum í verkið : Göngu- og hjólastígur meðfram Vatnsleysustrandarvegi Verk þetta felst í gerð malbikaðs göngu- og hjólastígs sem byrjar við gatnamót á Vogavegi í Vogum og liggur svo meðfram Vatnsleysustrandarvegi. Heildarlengd stígs er um 2470 m. Er verkinu nánar lýst á uppdráttum, verklýsingu og magnskrá. Helstu magntölur eru: Uppúrtekt 4200 m 3 Fyllingar 5600 m 3 Malbik 6375 m 2 Verklok skulu vera eigi síðar en 21. maí 2021. Þeir sem hyggjast bjóða í verkið skulu óska eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@vogar.is eða hringja í síma 440 6200 og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá þá útboðsgögnin send í tölvupósti. Útboðsgögn verða afhent frá og með föstudeginum 27. nóvember 2020. Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eigi síðar en föstudaginn 11. desember 2020, kl. 10:30. Opnun tilboða fer fram á fjarfundi með „Teams“, fundarkerfi 11. desember 2020, kl. 11:00. Þeir bjóðendur sem vilja tengjast opnunarfundinum skulu senda beiðni um það á netfangið skrifstofa@vogar.is og verður þeim þá sendur hlekkur til að tengjast fundinum.

Published

27.11.2020

Open for bids

27.11.2020

Deadline

11.12.2020

Otnox

Find tenders worth bidding for.

Create an account to explore this tender and find similar opportunities.

  • Tender documentsReview available files in one workspace.
  • Requirements and risksRequest a document analysis with references to the sources.
  • Your tender selectionContinue with your selected markets and sectors.