Verkið er fólgið i byggingu steyptra dælubrunna og dælu- og hreinsistöðvar fyrir fráveitu í Vogum með tilheyrandi lögnum og jarðvinnu og öllum frágangi, ásamt yfirfalls- og ofanvatnslögnum frá dælubrunnum á landi og fjöru, lagningu þrýstilagna að og frá dælubrunnum. Einnig er fólgið í verkinu uppsetning og tengingar lagna, dæla og rafbúnaðar og annars búnaðar tilheyrandi dælubrunnum og dælu- og hreinsistöð. Verkkaupi leggur til dælur og hreinsibúnað með þrepasíum, grófhreinsun og tilheyrandi búnað, verktaki sér um uppsetningu og tengingar. Dælu- og hreinsistöð ásamt dælubrunni verður staðsett við núverandi sjóvarnargarð við Hafnargötu og annar dælubrunnur verður staðsettur í Grænuborgarhverfi ofan núverandi sjóvarnargarðs neðan við göturnar Vesturborg og Sjávarborg. Rjúfa þarf sjóvarnargarða á báðum stöðum á meðan á vinnu stendur við dælubrunn og lagnir, sem síðan skal ganga að fullu frá görðunum í samræmi við það sem áður var. Færa á fram og byggja sjóvarnargarð upp á nýjum stað við Hafnargötu. Helstu magntölur eru: Uppgröftur 2520 m 3 Fyllingar 2260 m 3 Losun klappar 750 m 3 Sjóvarnargarður 850 m 3 Steypumót 490 m² Járnabinding 8950 kg Steinsteypa 107 m³ Fráveitulagnir 432 m Verkinu er skipt upp í tvo skilaáfanga: Verklok 1. skilaáfanga er eigi síðar en 30. desember 2022 og 2. skilaáfanga og heildarverki eigi síðar en 30. apríl 2023. Þeir sem hyggjast bjóða í verkið skulu óska eftir útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á netfangið dadi@t-sa.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá þá útboðsgögnin send í tölvupósti. Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum 9. ágúst 2022. Tilboðum skal skila rafrænt á netfangið dadi@t-sa.is eigi síðar en þriðjudaginn, 30. ágúst 2022 kl. 10:00. Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.
Published
12.08.2022
Open for bids
12.08.2022
Deadline
30.08.2022
Kaup og uppsetning færanlegra húseininga
Open for bids·Oct 6
Grænaborg – Fráveita – Útrás
Closed·Aug 10
Miðsvæði – Yfirborðsfrágangur Gangstéttar – Gangstígar – Kantsteinar – Þökulögn
Closed·Apr 7
Göngu- og hjólastígur meðfram Vatnsleysustrandarvegi
Closed·Nov 27
Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilboðum í verkið ” Vogar – Endurbætur fráveitu”.
Closed·Jun 26
Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilboðum í verkið ” Kirkjugerði – Gatnagerð og lagnir – Endurgerð götu ”.
Closed·Feb 27
Upplýsingatæknirekstur Hafrannsóknastofnunar
Open for bids·Oct 26
Vátryggingar fyrir RÚV
Open for bids·Oct 26
Múlaþing óskar eftir tilboðum í verkefnið: Herðubreið, Austurvegur 4 á Seyðisfirði – Bókasafn og bæjarskrifstofur
Open for bids·Oct 26
Almenningssamgöngur á landi á Austurlandi 2027-2028
Open for bids·Oct 26
Búðardalur og Borðeyri – Sjóvarnir 2026
Open for bids·Oct 26
Markaðskönnun: hugbúnaðarlausn fyrir stuðningsþjónustu
Planning·Oct 23
Create an account to explore this tender and find similar opportunities.