Sveitarfélagið Hornafjörður, hér eftir nefnt verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið „SANDBAKKI – GATNAGERГ eins og því er lýst í meðfylgjandi gögnum. Yfirlit yfir verkið Um er að ræða endurgerð götunnar Sandbakka á Höfn. Lengd götu er um 148 m, með gangstétt beggja megin við götu. Verktaki skal rétta fyllingar af með styrktarlagi. Gatan og gangstétt skulu undirbúnar undir jöfnunarlag. Gert er ráð fyrir því að endurnýjun fráveitulagna í götunni verði lokið um miðjan ágúst en þó skal verktaki gera ráð fyrir því að samræma vinnu við gatnagerðina með þeim verktaka sem sér um endurnýjun fráveitulagna. Gert er ráð fyrir að gatan verði malbikuð haustið 2026 og skal verktaki gera ráð fyrir að samræma þá vinnu við umsjónarmann verkkaupa. Umfang helstu verkþátta er: Gröftur út götustæði: 165 m 3 Styrktarlag: 73 m 3 Framkvæmdartími Verklok eru 15.september 2026 Gögn Gögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is og eða til vara á trausti@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „SANDBAKKI – GATNAGERГ. Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „SANDBAKKI – GATNAGERГ. Frekari fyrirspurnir skal senda á eftirfarandi netfang: trausti@hornafjordur.is þá merkja í “subject” reitinn: „SANDBAKKI – GATNAGERÐ – FYRIRSPURN“. Fyrirspurn skal berast í síðasta lagi 3 virkum dögum fyrir opnunardag tilboðs. Rafrænt skil og opnun tilboða Tilboðsgjafar skulu vera búnir að senda inn tilboði á sérstöku formi eigi síðar en mánudaginn 6.júlí 2026 kl. 11:00, en þá mun opnun tilboða fara fram í fundarsal í ráðhúsi Sveitarfélags Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn. Tilboð ásamt fylgigögnum skal senda með tölvupósti á netfangið utbod@hornafjordur.is og eða til vara á trausti@hornafjordur.is og skulu þau hafa borist áður en skilafrestur er runninn út. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi. Nánari upplýsingar veitir: Trausti Magnússon, trausti@hornafjordur.is sími 470-8000.
Published
22.06.2026
Open for bids
22.06.2026
Deadline
06.07.2026
Báran – Endurnýjun á gervigrasi
Open for bids·Oct 19
Endurnýjun Jökulfellsvallar, jarðvinna og yfirborðsfrágangur
Closed·Oct 13
Slökkvibifreið fyrir slökkvilið Hornafjarðar
Open for bids·Oct 2
Verðfyrirspurn – Sæbraut – Jarðvinna OG Lagnir
Closed·Aug 11
Verðfyrirspurn – Leikvöllur í Nesjum
Closed·Aug 8
Verðfyrirspurn – Báran – endurnýjun á yfirboðsefni – 1. áfangi
Closed·Jun 16
Hreinsun rotþróa fyrir Hvalfjarðarsveit
Open for bids·Oct 30
KRA – Viðgerð á leiðiskóflum
Open for bids·Oct 30
Bústaðavegur (418), Temporary Borgarlína Link via Nesbrautarbrú: Arnarhlíð – Burknagata, Preliminary and Detailed Design
Open for bids·Oct 29
Sérhæfð viðtalsmeðferð á vegum félags- og húsnæðismálaráðuneytisins
Open for bids·Oct 29
Markaðskönnun – leiga skrifstofuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu
Planning·Oct 29
Göngu- og hjólastígur Vogar að mislægum gatnamótum til Grindavíkur – Áfangi 1.
Open for bids·Oct 29
Create an account to explore this tender and find similar opportunities.