Endurnýjun gervigrass í Bárunni Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið „Báran – endurnýjun á gervigrasi“ . Um er að ræða almennt opið útboð sem auglýst er á Evrópska efnahagssvæðinu. Tilboð skal taka til alls þess sem nauðsynlegt er til að ljúka verkinu eins og því er lýst í útboðsgögnum. Lauslegt yfirlit yfir verkið Verkið felst í kaupum, afhendingu og uppsetningu á nýju gervigraskerfi án innfylliefna í knattspyrnuhúsinu Bárunni á Höfn í Hornafirði. Innifalið í verkinu er meðal annars gervigras, niðurlögn þess, merkingar, frágangur og allt annað sem nauðsynlegt er til að skila fullfrágengnu gervigrassvæði í samræmi við útboðsgögn. Útboðið er meðhöndlað sem vöruútboð með uppsetningu og frágangi þar sem meginhluti verksins felst í afhendingu gervigrass og tilheyrandi búnaðar. Framkvæmdartími Gert er ráð fyrir að samningur taki gildi 11. desember 2026 eða við undirritun samnings . Verkinu skal vera lokið eigi síðar en 9. febrúar 2027 . Verktaki skal fyrir undirritun samnings leggja fram verkáætlun sem sýnir framvindu verksins, helstu verkþætti, tímasetningar og mannafla. Útboðsgögn Til útboðsgagna verksins teljast: Útboðs- og verklýsing. Útboðsteikningar ráðgjafa. Tilboðsskrá og tilboðsblað. Skriflegar fyrirspurnir og svör sem fram koma á tilboðstíma. Útboðið fer fram rafrænt í útboðskerfinu Ajour . Öll samskipti á tilboðstíma, þar á meðal fyrirspurnir og athugasemdir vegna útboðsgagna, skulu fara fram í gegnum útboðskerfið. Frestur til að senda inn fyrirspurnir og athugasemdir er til 3. nóvember 2026 og verða svör við fyrirspurnum veitt eigi síðar en 10. nóvember 2026 . Skil og opnun tilboða Tilboðum skal skila rafrænt í gegnum útboðskerfið Ajour eigi síðar en 24. nóvember 2026 kl. 14:00 . Tilboð sem berast eftir að tilboðsfrestur rennur út verða ekki tekin til greina. Tilboð verða opnuð 24. nóvember 2026 kl. 14:00 . Þar sem um rafrænt innkaupaferli er að ræða verður ekki haldinn eiginlegur opnunarfundur. Að opnun lokinni verður opnunarskýrsla send öllum bjóðendum í gegnum Ajour. Bjóðendur bera ábyrgð á því að tilboð berist innan tilskilins frests og eru hvattir til að hefja skil tímanlega. Sveitarfélagið Hornafjörður áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum á grundvelli málefnalegra ástæðna og í samræmi við ákvæði útboðsgagna og laga um opinber innkaup. Opna útboðsvef Ajour
Published
19.10.2026
Open for bids
19.10.2026
Deadline
24.11.2026
Endurnýjun Jökulfellsvallar, jarðvinna og yfirborðsfrágangur
Open for bids·Oct 13
Slökkvibifreið fyrir slökkvilið Hornafjarðar
Open for bids·Oct 2
Verðfyrirspurn – Sæbraut – Jarðvinna OG Lagnir
Closed·Aug 11
Verðfyrirspurn – Leikvöllur í Nesjum
Closed·Aug 8
Verðfyrirspurn – Sandbakki – gatnagerð
Closed·Jun 22
Verðfyrirspurn – Báran – endurnýjun á yfirboðsefni – 1. áfangi
Closed·Jun 16
Raforkukaup fyrir Akraneskaupstað 2027-2030
Open for bids·Oct 23
Markaðskönnun: hugbúnaðarlausn fyrir stuðningsþjónustu
Planning·Oct 23
VEU-2609-0060 Fóðrun fráveitulagna
Open for bids·Oct 23
Markaðskönnun – RFI Sjálfvirkur lyfjalager
Planning·Oct 22
Rafræn undirritunarlausn fyrir Reykjavíkurborg. Rammasamningur, EES útboð nr. 16342
Open for bids·Oct 22
Einnota plastsvuntur fyrir Landspítala
Open for bids·Oct 22
Create an account to explore this tender and find similar opportunities.