FYRIR VÆNTANLEGT ÚTBOÐ MANNVIRKJAGERÐAR Kvíslatunguvirkjun – Útboð mannvirkjagerðar Orkubú Vestfjarða ohf. undirbýr útboð vegna mannvirkjagerðar Kvíslatunguvirkjunar í Selárdal í Steingrímsfirði. Gert er ráð fyrir að útboðsgögn verði birt um miðjan október 2026 og að framkvæmdir standi yfir á árunum 2027–2029. Vegna árstíma og veðuraðstæðna á framkvæmdasvæðinu er áhugasömum verktökum boðið til vettvangsskoðunar áður en útboðsgögn verða birt. Lauslegt yfirlit yfir verkið Kvíslatunguvirkjun verður 9,9 MW vatnsaflsvirkjun, staðsett í Selárdal í Steingrímsfirði, u.þ.b. 20 km frá Hólmavík. Aðkoma að vinnusvæðinu er frá Djúpvegi (61) um Strandaveg (643) að Geirmundarstaðavegi (6433) og loks eftir nýgerðum aðkomuvegi að væntanlegu stöðvarhúsi, Kvíslatunguvegur. Rétt fyrir sunnan væntanlegt stöðvarhús liggur 5 km nýr vegur upp Leitishlíðina að staðsetningu fyrirhugaðs inntakshúss. Sá vegur er enn í byggingu. Helstu magntölur í væntanlegu útboði eru Gröftur 370.000m³ Stíflufyllingar 380.000m³ Járnbending 140.000kg Steinsteypa 1.550m³ Forsteyptar einingar 340m² Niðurlögn þrýstipípu, ø1000 – 1400mm 3.000m Efnisnámur Ekki er talið að heppilegt efni til steypugerðar sé að finna á framkvæmdasvæðinu. Verktaki þarf því að gera ráð fyrir að útvega efni til steypugerðar annars staðar frá. Leyfismál Virkjunarleyfi hefur verið gefið út. Framkvæmdaleyfi liggur hins vegar ekki fyrir þar sem unnið er að breytingum á aðal- og deiliskipulagi í kjölfar jarðvegsrannsókna sumarið 2026. Gert er ráð fyrir að framkvæmdaleyfi verði veitt á fyrsta ársfjórðungi 2027. Vettvangsskoðun Orkubú Vestfjarða ohf. býður áhugasömum verktökum til vettvangsskoðunar á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði. Stefnt er að því að vettvangsskoðunin fari fram 8. eða 9. október 2026 kl. 12:00 , eftir því hvor dagurinn hentar betur með hliðsjón af veðri og aðstæðum á svæðinu. Ef veður eða aðstæður leyfa ekki vettvangsskoðun þessa daga kann henni að verða frestað fram yfir helgi. Þeir sem hyggjast taka þátt í vettvangsskoðun skulu tilkynna þátttöku með tölvupósti á netfangið jbh@verkis.is eigi síðar en 7. október 2026 . Skráðir þátttakendur verða upplýstir um endanlega dagsetningu og mætingarstað þegar nær dregur, með hliðsjón af veðurspá og aðstæðum á svæðinu. Vegna aðstæðna á svæðinu er nauðsynlegt að þátttakendur séu á vel útbúnum breyttum jeppum á a.m.k. 35″ dekkjum eða sexhjólum. Yfirlitskort af framkvæmdasvæðinu og frekari upplýsingar verða aðgengilegar á útboðsvef Orkubús Vestfjarða: https://in-tendhost.co.uk/orkubu/ Athygli er vakin á að þessi kynning og vettvangsskoðun felur ekki í sér formlega útboðsauglýsingu og þátttaka í vettvangsskoðun er ekki skilyrði fyrir þátttöku í hinu fyrirhugaða útboði. Allar upplýsingar sem kunna að hafa þýðingu fyrir gerð tilboða verða veittar öllum bjóðendum með sama hætti í tengslum við hið formlega útboðsferli. Reynist vettvangsaðgangur nauðsynlegur til að unnt sé að gera tilboð verður öllum bjóðendum tryggður sambærilegur aðgangur að framkvæmdasvæðinu.
Published
30.09.2026
Open for bids
30.09.2026
Deadline
07.10.2026
2026-04 Aðrennslisrör fyrir Kvíslatunguvirkjun (GRP og steypujárn)
Closed·Jul 29
2026-05 Endurbætur á dreifikerfi hitaveitu á Patreksfirði
Closed·May 22
2026-02 – Aðalstræti 112, Patreksfirði – Endurbætur á húsnæði
Closed·May 6
2026-03 Leitishlíðarvegur
Closed·Feb 26
2026-01 Lagning 11 og 33 kV jarðstrengja
Closed·Jan 22
2025-12 – 36kv Switchgear
Closed·Dec 18
Raforkukaup fyrir Akraneskaupstað 2027-2030
Open for bids·Oct 23
Markaðskönnun: hugbúnaðarlausn fyrir stuðningsþjónustu
Planning·Oct 23
VEU-2609-0060 Fóðrun fráveitulagna
Open for bids·Oct 23
Markaðskönnun – RFI Sjálfvirkur lyfjalager
Planning·Oct 22
Rafræn undirritunarlausn fyrir Reykjavíkurborg. Rammasamningur, EES útboð nr. 16342
Open for bids·Oct 22
Einnota plastsvuntur fyrir Landspítala
Open for bids·Oct 22
Create an account to explore this tender and find similar opportunities.