Orkubú Vestfjarða ohf. óskar eftir tilboðum í verkefnið LAGNING 11 OG 33 kV JARÐSTRENGJA. Um er að ræða lagningu jarðstrengja milli Ísafjarðar og Súðavíkur, ásamt tilheyrandi hlífum, viðvörunarborðum, jarðvír og fjarskiptarörum Mílu og Snerpu. Rafstrengirnir eru tveir (2), 11 kV og 33 kV mestan hluta leiðarinnar, en við Súðavík verða þrír (3) 11 kV strengir lagðir með 33 kV strengnum. Tengivirkið á Ísafirði stendur rétt norðan gatnamóta Djúpvegar og Vestfjarðavegar. Tengivirki í Súðavík verður reist á Langeyri syðst í bænum. Verktaki sér um jarðvinnu og leggur strengi, en öll tengivinna er í höndum verkkaupa. Minni verktakar eru hvattir til að kynna sér verkefnið sérstaklega. Heimilt er að bjóða í verkið í sameiningu og byggja á sameiginlegri getu aðila, í samræmi ákvæði veitureglugerðarinnar. Þannig geta tveir eða fleiri verktakar tekið sig saman og boðið í verkefnið sameiginlega. Útboðsgögn og allar nánari upplýsingar má finna á útboðsvef Orkubús Vestfjarða ohf.: https://in-tendhost.co.uk/orkubu/ Spurningar og svör verða meðhöndluð í hinu rafræna útboðskerfi.
Published
22.01.2026
Open for bids
22.01.2026
Deadline
27.02.2026
2026-07 – Hleðslustöðvar fyrir almenningshleðslu
Open for bids·Oct 27
Kvíslatunguvirkjun – Vettvangsskoðun
Closed·Sep 30
2026-04 Aðrennslisrör fyrir Kvíslatunguvirkjun (GRP og steypujárn)
Closed·Jul 29
2026-05 Endurbætur á dreifikerfi hitaveitu á Patreksfirði
Closed·May 22
2026-02 – Aðalstræti 112, Patreksfirði – Endurbætur á húsnæði
Closed·May 6
2026-03 Leitishlíðarvegur
Closed·Feb 26
Floating Pontoon Marina System – Skarfagarður
Open for bids·Nov 2
Hreinsun rotþróa fyrir Hvalfjarðarsveit
Open for bids·Oct 30
KRA – Viðgerð á leiðiskóflum
Open for bids·Oct 30
Bústaðavegur (418), Temporary Borgarlína Link via Nesbrautarbrú: Arnarhlíð – Burknagata, Preliminary and Detailed Design
Open for bids·Oct 29
Sérhæfð viðtalsmeðferð á vegum félags- og húsnæðismálaráðuneytisins
Open for bids·Oct 29
Markaðskönnun – leiga skrifstofuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu
Planning·Oct 29
Create an account to explore this tender and find similar opportunities.