Norðurorka hf., kt. 550978- 0169 óskar eftir tilboðum í byggingu dælustöðvar hitaveitu, byggingu borholuhúss, uppsteypu lokahúss við gasskilju og steyptar undirstöður gasskilju að Ytri- Haga í Dalvíkurbyggð. Gögn eru afhent með að óska eftir þeim á netfangið rab@verkis.is Stærð dælustöðvar er um 270 m 2 , stærð borholuhúss er um 60 m2 og stærð lokahúss er um 50 m 2 auk stálpalls og upphækkunar í hluta þess. Steyptar undirstöður undir gasskilju eru hringlaga og eru um 33 m að lengd. Dælustöð er staðsteypt bygging með loftaplötu úr forspenntum steypueiningar með ásteypulagi yfir hluta byggingar og á því svæði uppstóluðu trésperruþaki. Yfir öðrum hlutum byggingarinnar er venjulegt trésperruþak. Þak er klætt borðaklæðningu og þakstáli. Útveggir eru staðsteyptir samlokuveggir, þ.e.a.s. steyptir burðarveggir að innanverðu og steypt veðurkápa utan á einangrun. Loftfræsing er í byggingunni er það kerfi hluti verks sem og almennar húslagnir rafmagns og neysluvatns- og frárennslislagnir. Borholuhús er staðsteypt bygging, skipt upp í þrjá hluta með tveimur steyptum milliveggjum. Útveggir eru staðsteyptir samlokuveggir, þ.e.a.s. steyptir burðarveggir að innanverðu og steypt veðurkápa utan á einangrun. Loftaplata er staðsteypt og þak viðsnúið. Steypa er sjónsteypa samkvæmt nánari útlistun í verklýsingu arkitekts. Takmarkað magn er af loftræsilögnum, neysluvatnslögnum og raflögnum í byggingunni. Lokahús er staðsteypt bygging sem er staðsett við gasskilju. Gasskilja er ekki hluti þessa útboðs en þó er hluti þess að steypa undirstöður hennar. Lokahús er að hluta til með meiri lofthæð þar sem kemur millipallur úr stáli og stálgrindum í. Lokahús er óeinangrað að mestu leyti og í því er mjög takmarkaðar lagnir rafmagns.
Published
12.06.2026
Open for bids
12.06.2026
Deadline
08.07.2026
Glerárvirkjun 1 Akureyri Mokstur úr lóni
Open for bids·Oct 20
Foreinangruð stálrör
Closed·Sep 16
Raforkukaup vegna tapa í raforkudreifikerfi Norðurorku.
Closed·Aug 21
Raforkukaup fyrir veitukerfi Norðurorku
Closed·Aug 21
Borun vinnsluholu YV-24 á Ytri-Haga við Eyjafjörð
Closed·Jan 28
Norðurorka vegagerð að vinnslusvæði Ytri Haga Dalvíkurbyggð
Closed·Sep 20
2026-07 – Hleðslustöðvar fyrir almenningshleðslu
Open for bids·Oct 27
Autodesk hugbúnaðarleyfi, EES útboð nr. 16361
Open for bids·Oct 27
Upplýsingatæknirekstur Hafrannsóknastofnunar
Open for bids·Oct 26
Vátryggingar fyrir RÚV
Open for bids·Oct 26
Múlaþing óskar eftir tilboðum í verkefnið: Herðubreið, Austurvegur 4 á Seyðisfirði – Bókasafn og bæjarskrifstofur
Open for bids·Oct 26
Almenningssamgöngur á landi á Austurlandi 2027-2028
Open for bids·Oct 26
Create an account to explore this tender and find similar opportunities.