Útboð Hrunamannahreppur óskar eftir tilboðum í verkið: Hrunamannavegur 3, heilsugæslustöð, frágangur og innréttingar. Verklok eru: 31. júlí 2025. Verkið felst í frágangi, smíði og uppsetningu innréttinga í óinnréttað húsnæði að Hrunamannavegi 3 á Flúðum, þar sem fyrirhugað er að hefja starfsemi heilsugæslustöðvar. Um er að ræða lagningu allra lagna s.s. frárennslislagna, neysluvatnslagna, hitalagna, loftræsilagna og raflagna. Setja upp létta milliveggi, innihurðir, kerfisloft og gólfefni ásamt nýjum gluggum og útihurð. Helstu magntölur eru: Léttir veggir 350m2 Málum 1000m2 Gólfefni 370m2 Kerfisloft 370m2 Innihurðir 25 stk Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginum 11. nóvember 2024. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafaf samband við Guðmund Hjaltason hjá Eflu, Suðurlandi með tölvupósti á netfangið gudmundur.hjaltason@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti. Tilboðum skal skila á skrifstofu Hrunamannahrepps, Akurgerði 6, 845 Flúðum fyrir kl. 11:00 miðvikudaginn 11. desember 2024 en þá verða tilboð opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Sveitarstjórinn í Hrunamannahreppi
Published
11.11.2024
Open for bids
11.11.2024
Deadline
11.12.2024
Rekstur útstöðva og notendaþjónusta
Open for bids·Nov 3
ÚTBOÐ: Keilir – stækkun golfskála
Open for bids·Nov 3
Útboð á þjónustu ráðgjafarteymis verkkaupa (Client Side Support Team – CSST) fyrir Göng og brú ohf.
Open for bids·Nov 2
Floating Pontoon Marina System – Skarfagarður
Open for bids·Nov 2
Hönnun á lengingu Sundabakka
Open for bids·Nov 2
Hreinsun rotþróa fyrir Hvalfjarðarsveit
Open for bids·Oct 30
Create an account to explore this tender and find similar opportunities.