Otnox
🇮🇸Iceland·Buyer: Reykjavíkurborg

Fossvogsblettur – Lóðarframkvæmd, útboð nr. 16356

Open for bids·28 Oct 2026

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk: Fossvogsblettur – Lóðarframkvæmd, útboð nr. 16356. Lauslegt yfirlit yfir verkið: Framkvæmdin felur í sér lóðarframkvæmd vegna nýs 10 deilda leikskóla við Fossvogsblett 2 og lagningu nýs 85m göngustíg frá Fossvogsvegi að Fossvogsstíg. Leikskólalóðin í kringum leikskólann er ca. 4.870 m2 en leikskólabyggingin sjálf er 2.185 m2. Lóðin hefur þau einstöku gæði að mikið er af trjágróðri sem reynt hefur verið að halda í eftir fremstra megi. Hönnun tekur mið að að því heildaryfirbragð lóðarinnar er sem náttúrulegast með sterka skógartengingu en engu að síður öruggt og aðgengilegt með góðum stígatenginum og úthugsaðri lýsingu sem eykur bæði öryggi og ýtir undir ævintýralega stemmningu. Lóðin er skipulögð á þann máta að næst leikskólabyggingunni er að finna leikbúnað og harðari yfirborðsefni. Leikkofar, sandkassar og rólur með timburyfirbragði í takt við umhverfið standa nærri byggingunni en þegar lengra er haldið út á lóðina verður yfirbragð lóðarinnar náttúrulegra og á köflum algerlega óhreyft frá því sem er í dag. Útikennslusvæði með bálstæði er inni í skóginum. Tvo minni garða má finna við austurhlið leikskólans. Þeir eru tengdir við smiðjur í byggingunni. Auk lóðarframkvæmdar skal malbika 630 m2 bílastæði og tengja lóðina við Fossvogsveg með tveimur innkeyrslum. Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00: þann 28. október 2026. Hægt er að breyta tungumáli vefsíðunnar með því að velja „Íslenska“ í flettiglugganum neðst til vinstri.. Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað. Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 27. nóvember 2026. Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda

Published

28.10.2026

Open for bids

28.10.2026

Deadline

27.11.2026

Otnox

Find tenders worth bidding for.

Create an account to explore this tender and find similar opportunities.

  • Tender documentsReview available files in one workspace.
  • Requirements and risksRequest a document analysis with references to the sources.
  • Your tender selectionContinue with your selected markets and sectors.