Otnox
🇮🇸Iceland·Buyer: Vegagerðin

Búðafossvegur (23), Þjórsárdalsvegur – Landvegur

Closed·17 Jul 2026·ISK 2,908,407,213

Vegagerðin býður hér með út nýbyggingu Búðafossvegar, á um 7,4 km löngum kafla frá Þjórsárdalsvegi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi að Landvegi í Rangárþingi – Ytra. Innifalið í verkinu er gerð malbikaðs hringtorgs á gatnamótum Þjórsárdalsvegar og Búðafossvegar auk tengivega / heimreiða á fjórum stöðum, alls um 2,6 km. Byggja skal nýja 204 metra langa brú yfir Þjórsá. Brúin verður staðsett norðaustan við Búðafoss. Vegna fiskgengdar eru skorður settar á vinnu í farvegi Þjórsár sem hefur áhrif á byggingu varnargarða. Setja upp tvenn reiðgöng, Ø3,6 m, úr stálplötum, önnur ræsi og búfjárgöng, girðingar, ristarhlið, ljósastaurar og annan vegbúnað í samræmi við teikningar. Helstu magntölur í vegagerð Fyllingar 230.000 m³ Ræsalögn 370 m Styrktarlag 50.000 m³ Burðarlag 38.000 m³ Klæðing 57.000 m 2 Vegrið, uppsetning 705m Helstu magntölur í brúargerð Vegrið á brú 412 m Boraðir stálstaurar 940 m Mótafletir 169 m 2 Járnbending 000 kg Steypa 155 m 3 Forsteyptar einingar 173 stk Stálvirki 321 tonn Ryðvörn 727 m 2 Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 17. júlí 2026. Vegagerðin býður bjóðendum í framkvæmdir við Búðafossveg til vettvangsferðar fimmtudaginn 27. ágúst. Mæting er í Hvamm 3 klukkan 10, þar sem rúta býður hópsins. Í ferðinni verður m.a. farið að efnishaugum við Hvammsvirkjun, ekið að vegmótum Búðafossvegar og að fiskeldi GeoSalmo. Einnig verður farið að fyrirhuguðu hringtorgi á Þjórsárdalsvegi og að efnistökusvæði við Þverá. Skráning í ferðina er hér: Vettvangsferð Vegagerðarinnar um Búðafossveg – Fill out form Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. september 2026. Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Published

17.07.2026

Open for bids

17.07.2026

Conditions updated

17.07.2026

Deadline

22.09.2026

Otnox

Find tenders worth bidding for.

Create an account to explore this tender and find similar opportunities.

  • Tender documentsReview available files in one workspace.
  • Requirements and risksRequest a document analysis with references to the sources.
  • Your tender selectionContinue with your selected markets and sectors.