Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í gatnagerð í Birkihólum, sem er ný 70 metra löng botnlangagata út úr Skógarhólum ofan Lynghóla. Verkið felst í brottflutningi á jarðvegi og jarðvegsskiptum auk lagningar á veitulögnum og tenginga við núverandi kerfi. Einnig felst í verkinu malbikun á götu og uppsetning á götulýsingu. Markmið verksins er að gera lóðir við götuna byggingarhæfar. Helstu magntölur: Upprif á malbiki – 100m 2 Gröftur – 5.700m 3 Fylling – 4.000m 3 Malbik – 1.100m 2 Fráveitulagnir – 200m Brunnar – 4 stk. Ný niðurföll – 3 stk. Kaldavatnslagnir – 150 m Hitaveitulagnir – 120m Ljósastólpar – 7 stk. Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2026 með fyrirvara um að leyfismál tefji ekki fyrir verkáætlun verktaka. Unnið er að frágangi leyfismála. Útboðsgögn verða send þeim sem vilja eftir að beiðni þess efnis berst á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is Fyrirspurnartíma lýkur 20. júlí 2026 og rennur svarfrestur fyrirspurna út 22. júlí 2026. Tilboðum skal skila fyrir kl. 14:00 mánudaginn 27. júlí 2026 á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is eða á pappír á skrifstofur Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsinu á Dalvík.
Published
07.07.2026
Open for bids
07.07.2026
Deadline
27.07.2026
Böggvisbraut suður – Endurnýjun götu og fráveitulagna
Closed·Jul 7
Vetrarþjónusta fyrir Dalvíkurbyggð
Closed·May 20
Vatnstankur við Upsa – Janúar 2026
Closed·Jan 9
Vatnstankur við Upsa, sveitarfélagið Dalvíkurbyggð
Closed·Aug 5
Úrgangsþjónusta fyrir Dalvíkurbyggð
Closed·Feb 21
Dalvíkurbyggð leitar eftir aðila/aðilum til að annast rekstur á kaffihúsi í húsnæði Menningarhússins Bergs.
Closed·Nov 1
Raforkukaup fyrir Akraneskaupstað 2027-2030
Open for bids·Oct 23
Markaðskönnun: hugbúnaðarlausn fyrir stuðningsþjónustu
Planning·Oct 23
VEU-2609-0060 Fóðrun fráveitulagna
Open for bids·Oct 23
Markaðskönnun – RFI Sjálfvirkur lyfjalager
Planning·Oct 22
Rafræn undirritunarlausn fyrir Reykjavíkurborg. Rammasamningur, EES útboð nr. 16342
Open for bids·Oct 22
Einnota plastsvuntur fyrir Landspítala
Open for bids·Oct 22
Create an account to explore this tender and find similar opportunities.